Ég fór í smá jólagjafaleiðangur til Akureyrar í dag og endaði í dótabúð, ég varð svo hneiksluð þegar ég sá þessi dýr í pakka að ég bara varð að taka mynd af þessu með símanum mínum. Hvaða andskotans perri sér um að pakka svona dýrum, þetta er nú bara hálf dónalegt! ég á ekki til orð...
"WILD" animals...!
þriðjudagur, desember 11, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Múhahahaha....
mér finnst best að ljónið skuli vera með andlitið uppí rassgatinu á nashyrningnum hahhaha!!
eh já og hendina á rassinum á sebrahestinum!
Skrifa ummæli